Fara í efni

60% starf skipulagsfulltrúa laust til umsóknar

Laust er til umsóknar starf skipulagsfulltrúa Hvalfjarðarsveitar. Um er að ræða 60% starf innan stjórnsýslu sveitarfélagsins. Leitað er að metnaðarfullum aðila til að stýra fjölbreyttum verkefnum í skipulagsmálum sveitarfélagsins. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Helstu verkefni og ábyrgðarsvið:
Skipulagsfulltrúi hefur yfirumsjón með skipulagsmálum sveitarfélagsins, þjónustar íbúa Hvalfjarðarsveitar á því málefnasviði og er ráðgefandi fyrir sveitarstjórn og umhverfis,- skipulags- og náttúruverndarnefnd og vinnur skv. samþykktum þeirra. Eftirfarandi heyrir m.a. undir verkefna- og ábyrgðarsvið skipulagsfulltrúa Hvalfjarðarsveitar:

  • Yfirumsjón skipulagsmála í sveitarfélaginu.
  • Málsmeðferð skipulagsmála.
  • Skipulagsgerð, undirbúningur og verkstjórn.
  • Útgáfa framkvæmdaleyfa.
  • Umsagnir leyfisumsókna, samráð við opinbera aðila, almenning og aðra hagsmunaaðila.
  • Eftirlit með að framkvæmdir séu í samræmi við skipulag og útgefin leyfi.
  • Kynningar og auglýsingar á lýsingum og skipulagstillögum auk yfirferðar ábendinga og athugasemda.
  • Undirbúningur nefndarfunda, lögformleg afgreiðsla erinda og eftirfylgni mála.
  • Gerð starfs- rekstrar-, og framkvæmdaáætlana fyrir þá málaflokka sem undir hann heyra.

Skipulagsfulltrúi ber ábyrgð á meðferð, skráningu og varðveislu gagna, úrvinnslu og upplýsingagjöf, stefnumótun, þróun verklags og þjónustugæða. Skipulagsfulltrúi er starfsmaður umhverfis,- skipulags,- og náttúruverndarnefndar.

Almennt stjórnunarsvið:
Skipulagsfulltrúi starfar og stjórnar í samræmi við lög og reglugerðir sem gilda um skipulagsmál sveitarfélaga. Einnig eftir lögum er varða opinbera þjónustu og stjórnsýslu, samkvæmt markmiðum sveitarstjórnar og í samræmi við fjárhagsáætlun Hvalfjarðarsveitar á hverjum tíma.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun og viðeigandi réttindi til að annast skipulagsgerð skv. 7. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er skilyrði.
  • Þekking og reynsla af skipulagsmálum er skilyrði.
  • Reynsla af störfum í opinberri stjórnsýslu er skilyrði.
  • Reynsla af þátttöku í stefnumótandi áætlanagerð og gerð rekstrar- og fjárhagsáætlana er æskileg.
  • Reynsla af stjórnun, rekstri og þróunarstarfi er kostur.
  • Færni í mannlegum samskiptum auk forystu- og skipulagshæfileika.
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti.

Kjör:
Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningum viðkomandi stéttarfélags og Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Umsóknarfrestur er til og með 6. febrúar 2022. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Umsóknum skal fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Umsóknir skal senda á skrifstofu Hvalfjarðarsveitar, Innrimel 3, 301 Akranes eða á netfangið hvalfjardarsveit@hvalfjardarsveit.is
Nánari upplýsingar um starfið veitir Linda Björk Pálsdóttir sveitarstjóri í síma 433-8500 og á netfanginu linda@hvalfjardarsveit.is

Hvalfjarðarsveit er öflugt sveitarfélag með um 690 íbúa. Náttúrufegurð er mikil og möguleikar til að njóta fjölbreyttrar útiveru eru óþrjótandi. Hvalfjarðarsveit er dreifbýlt sveitarfélag með litlum íbúakjörnum. Þar er nægt lóðaframboð, fjölbreytt atvinnutækifæri, öflugur landbúnaður, vaxandi ferðaþjónusta og metnaðarfullt skólastarf.
Mikil uppbygging hefur átt sér stað á atvinnusvæðinu við Grundartanga með fjölbreyttum fyrirtækjum. Hvalfjarðarsveit er í nálægð við þéttbýli og í góðu samstarfi við nágrannasveitarfélög. Nánari upplýsingar má finna á www.hvalfjardarsveit.is