Fara í efni

Skimað fyrir Covid-19 á Akranesi í samvinnu við Íslenska erfðagreiningu

Íslensk erfðagreining og HVE bjóða íbúum Akraness og nágrennis upp á skimun fyrir Covid-19 dagana 29. og 30 apríl.

Sýnataka fer fram við Þjóðbraut 11 á planinu við Sjúkrabílastöðina, einstaklingar þurfa að vera inni í bíl við sýnatökuna. Tekið er strok úr nefi og hálsi.

Bókun fer fram með að skrá sig hér: http://bokun.rannsokn.is/

Hvetjum fólk til að taka þátt í skimuninni.