Fara í efni

Sketsasamkeppni fyrir ungmenni á Vesturlandi

Í tilefni barnamenningarhátíðar Vesturlands efnir Hvalfjarðarsveit til sketsasamkeppni fyrir ungmenni á Vesturlandi. Þema keppninnar er „Leiktu fullorðna“.

Ungmenni eru hvött til að nýta sköpunarkraftinn, spreyta sig á handritagerð, leik og kvikmyndagerð og senda inn myndband með skets sem tengist þemanu.

Í dómnefnd sitja:

  • Bergur Líndal, kvikmyndagerðarmaður.
  • Brynhildur Stefánsdóttir, formaður menningar- og markaðsnefndar Hvalfjarðarsveitar.
  • Matthías Tryggvi Haraldsson, handritshöfundur.

Verðlaun verða veitt fyrir skemmtilegustu myndverkin í fyrsta, öðru og þriðja sæti.

Skilafrestur er 31. október 2026. Myndböndum skal skilað í gegnum innsendingarhlekk á SharePoint.

https://hvalfjardarsveit-my.sharepoint.com/:f:/g/personal/andrea_hvalfjardarsveit_is/IgCerystVegMSboe7TjQEs_yAdHQeQto4WtTXKlLZnGmSn0