Sigurður Þór settur varaslökkviliðsstjóri slökkviliðs Akraness og Hvalfjarðarsveitar
03. júlí 2026
Sigurður Þór Elísson hefur verið settur tímabundið í stöðu varaslökkviliðsstjóra hjá Slökkviliði Akraness og Hvalfjarðarsveitar frá 1. júlí 2026. Sigurður Þór hefur starfað hjá SAH frá árinu 2002 og hefur lokið menntun til starfsins frá Brunamálaskóla HMS fyrst sem almennur slökkviliðsmaður, reykkafari, þjálfunarstjóri og síðar varðstjóri og býr yfir viðtækri reynslu innan liðsins. Sigurður Þór hefur starfað hjá SAH sem eldvarnareftirlitsmaður í fullu starfi síðan 2020.