Fara í efni

Sérstakur húsnæðisstuðningur vegna 15-17 ára barna

Opið er fyrir umsóknir um húsnæðisstuðning vegna 15-17 ára barna.

Veittur er sérstakur húsnæðisstuðningur til foreldra eða forsjáraðila 15-17 ára barna sem leigja herbergi, eru á heimavist eða á námsgörðum vegna náms fjarri lögheimili. Sérstakur húsnæðisstuðningur er óháður tekjum og eignum foreldra eða forsjáraðila.

Reglur um húnæðisstuðning má sjá hér

Rafræna umsókn á heimasíðu Hvalfjarðarsveitar má sjá hér.

Með umsókninni þurfa að fylgja eftirfarandi gögn.
1) Staðfesting á námi barns frá viðkomandi menntastofnun.
2) Afrit af húsaleigusamningi.

Athuga að umsóknir skulu berast fyrir 15. þess mánaðar sem greitt er fyrir og ekki er greitt aftur í tímann.

Nánari upplýsingar veiti Félagsmálastjóri Hvalfjarðarsveitar í síma 433-8500 eða á felagsmalastjori@hvalfjardarsveit.is