Sérstakur húsnæðisstuðningur vegna 15-17 ára barna
Opið er fyrir umsóknir um sérstakan húsnæðisstuðning vegna 15 - 17 ára barna.
Hvalfjarðarsveit veitir foreldrum og forsjáraðilum barna á aldrinum 15-17 ára sem leigja herbergi, eru á heimavist eða á námsgörðum fjarri lögheimili, húsnæðisstuðning. Húsnæðisstuðningurinn er óháður tekjum og eignum foreldra eða forsjáraðila ungmennanna. Stuðningurinn skal nema 60% af húsnæðiskostnaði vegna leigunnar en getur aldrei orðið hærri en 50.000 krónur á mánuði.
Reglur um sérstakan húsnæðisstuðning.
Umsóknir skulu berast rafrænt inn á
íbúagátt Hvalfjarðarsveitar.
Með umsókn skal fylgja vottorð frá viðkomandi menntastofnun sem staðfestir nám umsækjanda og að umsækjandi leigi herbergi á heimavist, námsgarði eða í leiguherbergi í íbúðarhúsnæði.
Umsókn skal berast fyrir 15. þess mánaðar sem greitt er fyrir, ekki er greitt aftur í tímann.
Umsókn gildir einungis fyrir hverja skólaönn.
Nánari upplýsingar veitir deildarstjóri Velferðar- og fræðsludeildar Hvalfjarðarsveitar í síma 433-8500 eða á
felagsmalastjori@hvalfjardarsveit.is