Fara í efni

Sérstakir frístundastyrkir út árið og sótt um í gegnum Sportabler

Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, hefur framlengt sérstaka frístundastyrki fyrir börn sem búa á tekjulægri heimilum þar sem markmiðið er að jafna tækifæri þeirra til þátttöku í skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi og verður nú hægt að sækja um styrki út árið 2021. Þá hefur félagsmálaráðuneytið einnig gengið frá samningi við Abler um að hægt verði að sækja um styrkina  við skráningu barns í íþrótt eða tómstund gegnum rafrænt skráningarkerfi Sportabler.

Sportabler fer með mikinn meirihluta skráninga í tómstundir og er langyfirgripsmesta forritið þar sem hægt er að skrá tómstundir barna. Markmiðið með samningnum er að ná sem allra víðast og einfalda lífið fyrir sem flesta. 

Það sem hefur breyst frá fyrri úthlutunum er að núna er ekki um að ræða sérstaka umsókn eftir skráningu og greiðslu, heldur er umsóknarferlið og úthlutun styrksins komið inn í rafræna skráningarferlið og þannig hægt að „úthluta” þessum sérstaka styrk  í skráningarkerfum Nóra og Sportabler. Þetta er því mjög þægilegt fyrir notendur og gerir útdeildingu styrksins skilvirkari fyrir alla aðila.

Hægt er að sækja sérstakan frístundastyrk fyrir börn sem fædd eru á árunum 2006-2015 og búa á heimili þar sem heildartekjur heimilisins voru að meðaltali lægri en 787.200 kr. á mánuði á tímabilinu mars – júní 2021. Styrkurinn er 25.000 kr. á hvert barn til áramóta og rúmlega 13.000 börn eiga rétt á styrknum. Stefnt er á að veita sams konar styrk eftir áramót.