Fara í efni

Samstarfssamningur við ÍA

Í gær var undirritaður samstarfssamningur milli Hvalfjarðarsveitar og Íþróttabandalags Akraness. Markmið Hvalfjarðarsveitar með samningnum er að styðja við öflugt íþrótta-, forvarna- og félagsstarf sem fram fer innan Íþróttabandalags Akraness, hjá aðildarfélögum þess, fyrir samfélagið í Hvalfjarðarsveit. Samningurinn tryggir að íbúar í Hvalfjarðarsveit eigi kost á að stunda hvers kyns starf sem fram fer innan Íþróttabandalagsins og aðildarfélaga þess, hvort sem um er að ræða íþrótta-, forvarna-, félagsstarf eða annað.

Auk samningsbundinna fjárhæða til Íþróttabandalagsins, sem bæði eru tengdar íbúafjölda sem og iðkendafjölda, býður Hvalfjarðarsveit foreldrum barna, frá fæðingu að 18 ára aldri, auk þess niðurgreiðslu íþrótta- og tómstundagjalda, hjá viðurkenndum félögum, í formi tómstundastyrks. Styrkurinn er til þess ætlaður að stuðla að aukinni þátttöku barna og ungmenna í íþrótta- og tómstundastarfi og efla þar með enn frekar barna- og ungmennastarf. Nánari upplýsingar um tómstundastyrkinn má finna HÉR.