Samningur undirritaður um arkitekta- og landslagshönnun nýs leikskólahúsnæðis

Undirritaður hefur verið samningur við Andrúm arkitekta ehf. um arkitekta- og landslagshönnun nýs leikskólahúsnæðis í Melahverfi. Helstu verkefni skv. samningnum eru gerð þarfagreiningar, hönnun á nýjum leikskóla ásamt frágangi lóðar auk gerð verklýsinga og kostnaðaráætlunar fyrir hvern verkþátt svo bjóða megi verkið út. Verklok ráðgjafa eru þegar lokaúttekt nýs leikskóla hefur farið fram og reyndarteikningar hafa verið lagðar inn til byggingarfulltrúa.
Samningurinn kveður á um að fullnaðarhönnun skuli lokið 15. desember nk. og að útboð verkframkvæmdar fari fram í febrúar 2026 með upphafi framkvæmdartíma í apríl 2026 og verklokum sumarið 2027.
Fyrirhugað er að hið nýja leikskólahúsnæði verði norður af nýja leiksvæðinu, Vinavelli, við Innrimel í Melahverfi. Ráðgert er að leikskólinn verði hannaður fyrir allt að 68 börn, með fjórum deildum, einni deild fyrir börn frá 12 mánaða aldri sem rúmi 12-14 börn en aðrar deildir rúmi 18 börn hver. Stoðrými verða hönnuð til að mæta þörfum allt að 68 barna auk starfsfólks. Líkur eru á að bygging hússins verði áfangaskipt, þ.e. fjórðu deildinni.