Fara í efni

Sæti við borðið

Þroskahjálp ásamt Fjölmennt og Átaki — félags fólks með þroskahömlun, munu á næstu vikum ferðast um landið með fundarherferðina Sæti við borðið

Fimmtudaginn 14. september nk. kl. 17.00 - 19.00 verður fundur í Borgarnesi að Hótel Hamri.

Fundarherferðin Sæti við borðið fjallar um stuðning og fræðslu fyrir fólk með þroskahömlun og skyldar fatlanir á landsbyggðinni til aukinnar þátttöku og virkni í notendaráðum.

Í öllum sveitarfélögum/þjónustusvæðum eiga að vera starfandi notendaráð þar sem fötluðu fólki er gert að hafa áhrif um málefni sem skipta máli í lífi þess. Tilgangurinn er að auka áhrif fatlaðs fólks á skipulag og framkvæmd þjónustu og hagsmunamál í sveitarfélaginu.

Með því að gefa fötluðu fólki tækifæri til að vera í notendaráði og skila tillögum um breytingar eru meiri möguleikar á því að sveitarfélagið mæti betur þjónustuþörfum hvers og eins og fái mikilvægar upplýsingar til að gera betur. Þetta getur haft jákvæð áhrif á allt samfélagið og kveikir aðra hugsun um fatlað fólk og þá sem þurfa á aðstoð að halda í lífinu.

Þroskahjálp, Fjölmennt og Átak hvetja fólk með þroskahömlun sérstaklega til að mæta á fundina og læra um starfsemi notendaráðs og hvernig þau geta haft áhrif á skipulag og framkvæmd þjónustu í sínu nærsamfélagi. Félögin hvetja einnig starfsfólk sveitarfélaga til að mæta og óska eftir samstarfi við alla sem að málinu koma, t.d. símenntunarstöðvar, framhaldsskóla o.s.frv.