Fara í efni

Rotþróarhreinsun 2024

Fyrirkomulag rotþróaheinsunar árið 2024 verður með svipuðu sniði og undanfarin ár og sér fyrirtækið Hreinsitækni ehf. um verkið. Hér má sjá upplýsingar frá fyrirtækinu um rotþrær og hreinsun þeirra.

Sveitarfélaginu er skipt upp í 3 hreinsunarsvæði og er hvert svæði hreinsað einu sinni á þriggja ára fresti. Á meðfylgjandi korti má sjá svæðisskiptinguna, svæði 1 sem er blátt, svæði 2 sem er grænt og svæði 3 sem er rautt. Á þessu ári verður svæði 2 / græna svæðið hreinsað.

Verktakinn fer fljótlega af stað og vinnur verkið eins og veður, færð og aðstæður leyfa. Húseigendur/lóðarhafar eru því hvattir til að hafa gott aðgengi að rotþróm til að tryggja að hreinsunin gangi greiðlega fyrir sig (ólæst hlið, grisja trjágreinar og reita gróður frá stútnum ef þarf og merkja stút með fána eða stiku ef hann sést illa).

Á kortasjá heimasíðu Hvalfjarðarsveitar (undir veitur), er hægt að sjá stöðu hreinsunar. Á heimasíðu Umhverfisstofnunar er að finna gagnlegt efni um fráveitumál: Umhverfisstofnun | Fráveitumál (ust.is), m.a. leiðbeiningar um rotþrær og siturlagnir.

Ef óskað er eftir frekari upplýsingum þá má hafa samband við skrifstofu Hvalfjarðarsveitar í síma 433-8500 eða á netfangið umhverfi@hvalfjardarsveit.is