Fara í efni

Rafrænar umsóknir um byggingarleyfi nú á Íbúagátt

Hvalfjarðarsveit hefur tekið í notkun OneLand Robot rafrænt umsóknar og afgreiðslukerfi fyrir umsóknir um byggingaráform og byggingarleyfi. Hönnuðir eða eigendur geta nú með auðveldum hætti sent inn rafrænar umsóknir, tilnefnt byggingarstjóra og iðnmeistara og þeir hinir sömu staðfest sig á verk. Allt ferlið er rafrænt þar sem allar aðgerðir eru staðfestar með rafrænum skilríkjum í farsíma.