Fara í efni

Qair - Umhverfismat framleiðslu á rafeldsneyti á Grundartanga

Þriðjudaginn 9. apríl verður opið hús frá kl. 20:00-21:30 á Hótel Laxárbakka vegna umhverfismats á framleiðslu
rafeldsneytis á Grundartanga.
Á staðnum verða fulltrúar frá Qair á Íslandi og VSÓ Ráðgjöf sem munu veita upplýsingar um framkvæmdina, umhverfisáhrif og svara fyrirspurnum.
Qair á Íslandi ehf. undirbýr nú framleiðslu á rafeldsneyti á Grundartanga í Hvalfjarðarsveit. Áform miðast við að framleiða vetni með rafgreiningu og áframvinna það í ammoníak til að nota í orkuskiptum. Bæði alþjóðleg og innlend eftirspurn eftir grænu eldsneyti hefur aukist verulega m.a. til samgangna á landi og sjó.

Skipulagsstofnun hefur auglýst umhverfismatsskýrslu sem nú er aðgengileg í Skipulagsgátt. Öll geta kynnt
sér skýrsluna og veitt umsögn um framkvæmdina og umhverfismat hennar. Athugasemdir skulu vera skriflegar
og berast eigi síðar en 26. apríl 2024 inn á Skipulagsgátt (www.skipulagsgatt.is).