Pistill sveitarstjóra – Bjartsýni og metnaður til framtíðar
Kæru íbúar Hvalfjarðarsveitar.
Nú eru tæpir tveir mánuðir liðnir frá því ný sveitarstjórn tók við og undirritaður var ráðinn til starfa. Þessar fyrstu vikur hafa einkennst af því að kynnast starfsemi Hvalfjarðarsveitar, funda með starfsfólki sveitarfélagsins, hitta samstarfsaðila og fara yfir þau fjölmörgu verkefni sem fram undan eru. Framhald verður á því á næstu vikum að leitast við að kynnast samfélaginu enn betur, hitta fólk og ræða málin.
Það sem hefur strax vakið athygli mína er hversu sterkur grunnur er til staðar hér í Hvalfjarðarsveit. Hjá sveitarfélaginu starfar öflugur hópur starfsfólks, rekstur sveitarfélagsins er traustur og samfélagið býr yfir miklum styrkleikum. Um leið blasir við að tækifærin eru fjölmörg og framtíðin björt.
Á næstu misserum mun sveitarfélagið vinna markvisst að verkefnum sem skipta samfélagið máli. Þar má nefna lokasprett á uppbyggingu íþrótta-, félags- og skólasvæðisins við Heiðarskóla, útboð á framkvæmdum við leikskóla, ýmis skipulags- og húsnæðismál, eflingu þjónustu við íbúa og stuðning við áframhaldandi atvinnuuppbyggingu. Við viljum halda áfram við að skapa góð skilyrði fyrir fjölskyldur, fyrirtæki og þá sem vilja búa og starfa í Hvalfjarðarsveit.
Samgöngumál verða áfram meðal stærstu hagsmunamála sveitarfélagsins. Öryggi á Vesturlandsvegi, hraðari uppbygging mikilvægra vegaframkvæmda og undirbúningur framtíðarlausna fyrir samgöngur um Hvalfjörð eru verkefni sem sveitarfélagið mun leggja ríka áherslu á. Þar eigum við að vera öflugur málsvari íbúa og atvinnulífs.
Jafnframt munum við halda áfram að skoða ný tækifæri sem geta styrkt sveitarfélagið til framtíðar. Þar falla meðal annars undir skipulagsmál, fjölbreyttir búsetukostir og leiðir til að nýta þá miklu möguleika sem felast í einstöku umhverfi Hvalfjarðarsveitar. Markmiðið er að sveitarfélagið verði enn eftirsóttari kostur fyrir fólk sem vill njóta góðra lífsgæða, öflugs samfélags og fjölbreyttra atvinnumöguleika.
Það sem skiptir mig þó ekki síður máli er að eiga gott samtal við íbúana. Sveitarfélag verður aldrei sterkara en tengsl þess við fólkið sem þar býr. Þess vegna vil ég hvetja ykkur til að hafa samband ef eitthvað liggur ykkur á hjarta, hvort sem það eru hugmyndir, ábendingar eða áhyggjur. Ég tel mikilvægt að sveitarstjóri sé sýnilegur, aðgengilegur og tilbúinn til að hlusta og mun ég reyna að standa undir þeim þætti.
Hér á heimasíðunni okkar stefni ég að því að birta reglulega pistla þar sem ég fer yfir helstu verkefni sveitarfélagsins, stöðu þeirra og það sem fram undan er. Ég vona að þeir verði liður í opnum og góðum samskiptum við íbúa.
Ég hlakka til áframhaldandi samstarfs við sveitarstjórn, starfsfólk sveitarfélagsins, fyrirtæki, félagasamtök og alla íbúa Hvalfjarðarsveitar. Ég er sannfærður um að með góðu samtali og samvinnu að leiðarljósi eigum við eftir að ná mörgum góðum áföngum á komandi árum, samfélaginu hér í Hvalfjarðarsveit til framdráttar.
Njótum sumarsins og lífsins !
Bjarki Þorsteinsson
Sveitarstjóri