Fara í efni

Orðsending frá aðgerðastjórn almannavarna á Vesturlandi

Virðum fjarlægðarmörkin
 

Lágmark 2 metrar milli manna og mest 15 mínútur í einu

  • Reglur um sóttkví gilda líka um þá sem kjósa að dvelja í sumarhúsi á meðan sóttkví stendur.
  • Einstaklingar í sóttkví mega ekki fara sjálfir eftir aðföngum og þar af leiðandi ekki í matvöruverslanir.
  • Einstaklingar í sóttkví mega ekki fara sjálfir með sorp á móttökustöðvar sveitarfélaga.
  • Einstaklingar í sóttkví mega fara í göngutúra en verða skilyrðislaust að halda reglur um fjarlægð frá öðrum.

Vinnum saman og hindrum frekari útbreiðslu smita.

Athygli er vakin á því að brot á reglum um sóttkví varða við lög.

Aðgerðastjórn almannavarna á Vesturlandi.

 Rauði krossinn:

Aðstoð með aðföng

Hægt er að hafa samband við Rauða krossinn varðandi aðföng eftir þörfum. Allir sem staddir eru hér á landi en þurfa að vera í sóttkví í heimahúsi geta haft samband við hjálparsíma Rauða krossins í
síma 1717 eða á netspjalli á www.1717.is.

Þar er hægt að óska eftir aðstoð, leita stuðnings, fá upplýsingar og ræða við einhvern í trúnaði.

Hjálparsíminn er opinn allan sólarhringinn og númerið er gjaldfrjálst.