Opnunarhátíð Heiðarborgar frestað
Opnunarhátíð Heiðarborgar, sem fyrirhuguð var laugardaginn 3. október kl. 13:30, verður því miður að fresta.
Ástæða frestunarinnar er sú að ekki næst að ljúka nauðsynlegri öryggisúttekt vegna brunavarna fyrir fyrirhugaðan opnunardag.
Öryggi gesta og starfsfólks verður ávallt að vera í fyrirrúmi og því er ekki annað í stöðunni en að bíða með hátíðlega opnun þar til öllum nauðsynlegum öryggiskröfum hefur verið fullnægt.
Okkur þykir leitt að þurfa að fresta opnuninni, ekki síst þar sem mikil tilhlökkun hefur verið fyrir því að taka þetta glæsilega mannvirki formlega í notkun með íbúum og öðrum gestum.
Við látum þetta þó ekki slá okkur út af laginu. Heiðarborg bíður okkar og við munum opna húsið með enn meiri krafti þegar allt er klárt og öruggt.
Ný dagsetning opnunarhátíðar verður kynnt um leið og hún liggur fyrir.
Við þökkum fyrir skilninginn og hlökkum til að fagna saman í Heiðarborg við fyrsta tækifæri.
Undirritaður er til svara ef frekari upplýsinga er óskað.
Björn Bjarki Þorsteinsson
Sveitarstjóri Hvalfjarðarsveitar