Opnunarhátíð Heiðarborgar 3. október 2026
15. september 2026
Laugardaginn 3. október fer fram opnunarhátíð Heiðarborgar, íþrótta- og samfélagsmiðstöðvar, og hefst dagskráin kl. 13:30.
Það er okkur sönn ánægja að bjóða íbúa Hvalfjarðarsveitar og gesti velkomna á opnunarhátíðina.
Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá fyrir alla fjölskylduna. Formaður ÍSÍ verður á staðnum, Latibær mætir með fjör og skemmtun og boðið verður upp á veitingar. Gestum gefst jafnframt tækifæri til að skoða húsið og kynna sér aðstöðuna.
Hlökkum til að sjá ykkur í Heiðarborg.