Fara í efni

Opinn fundur fyrir ferðaþjónustuna

Boðið er til opins fundar í Hjálmakletti í Borgarnesi, miðvikudaginn, 8. mars kl. 10:00

Á fundinum verður sjónum beint að hæfni, gæðum og arðsemi í íslenskri ferðaþjónustu.

Fundarstjóri er Páll S. Brynjarsson.

Gestafyrirlesari fundarins verður Gyða Kristjánsdóttir, mannauðsráðgjafi hjá ISAVIA en hún ætlar að fjalla um hvernig við tengjum heiminn í gegnum Ísland.

Á dagskránni verða sex fjölbreyttir fyrirlestrar um ferðaþjónustu á Vesturlandi, boðið verður upp á hádegismat og deginum líkur með pallborðsumræðum þar sem Jóhanna María Sigmundsdóttir, verkefnastjóri hjá Dalabyggð mun ræða um nýliðaþjálfun, áskoranir í ferðaþjónustu á Vesturlandi og aukin gæði við þátttakendur.

Þátttaka á fundinum er ókeypis en nauðsynlegt er að skrá sig

Skráning fer fram hér Aukin hæfni starfsfólks - fjársjóður í ferðaþjónustu á Vesturlandi

Hlökkum til að sjá ykkur í Hjálmakletti.

Markaðsstofa Vesturlands, SAF og Hæfnisetur ferðaþjónustunnar.