Fara í efni

Opið hús eldri borgara 60 ára og eldri

Opið hús 60 ára og eldri verður í Miðgarði miðvikudaginn 15. desember n.k. kl. 15:00.

Í tilefni að því að það styttist óðum í hátíð ljóss og friðar ætlum við að eiga hátíðlega stund. Við fáum til okkar góða gesti. Prestarnir okkar koma í heimsókn. Einnig verða frábær tónlistaratriði, Stefán Helgi Stefánsson tenórsöngvari syngur og einnig verður atriði frá Tónlistarskólanum á Akranesi. Njótum þess að koma saman og hlusta á fallega jólatóna.

Hátíðarkaffi með tertum og heitu súkkulaði.