Fara í efni

Opið hús 60 ára og eldri í Hvalfjarðasveit

Opið hús verður í Miðgarði miðvikudaginn 30. nóvember næstkomandi klukkan 14:00

Máni Björgvinsson tónmenntarkennari og tónlistarmaður ætlar að koma til okkar og spila og syngja fyrir okkur. Máni hóf störf í Heiðarskóla í haust og hefur hann verið að slá í gegn hjá nemendum.

Einnig ætlar Ingibjörg Daníelsdóttir á Fróðarstöðum að koma og fræða okkur um Sögufélag Borgfirðinga.

Kaffiveitingar.

Hlökkum til að sjá sem flesta.