Fara í efni

Opið hús 60 ára og eldri í Hvalfjarðasveit

Opið hús verður í Miðgarði miðvikudaginn 16. nóvember nk. kl. 13:00 (ath. breyttan tíma).

Þar sem það styttist í jólin þá ætlum við að vera með jólaföndur. Hugmyndin er að vera með kerti líkt og í fyrra og einnig líma á krukkur. Málningin verður einnig uppi við fyrir þá sem eru í keramikinu.

Við hvetjum einnig þá sem ekki eru að mála eða föndra að koma og kíkja á okkur og fá sér kaffisopa og spjalla.