Fara í efni

Opið hús 60 ára og eldri í Hvalfjarðasveit

Opið hús verður í Miðgarði miðvikudaginn 5. október kl. 14:00.
Stefnt er að því að halda áfram með föndur fyrir þá sem vilja. Keramik, líma á krukkur eða kerti og þeir sem vilja geta þá tekið með sér prjóna. Upplestur úr bókinni um Gísla á Uppsölum. Einnig verða spil á borðum fyrir þá sem vilja.
Séra Ólöf Margrét Snorradóttir sóknarprestur ætlar að koma og heimsækja okkur.
                                       

                        Kaffiveitingar.
         Hlökkum til að sjá sem flesta.