Fara í efni

Öldungaráð kynnti áherslur sínar fyrir sveitarstjórn

Ábendingar Öldungaráðs Hvalfjarðarsveitar verða m.a. teknar til umfjöllunar í vinnu sveitarstjórnar við gerð fjárhagsáætlunar sveitarfélagsins fyrir árið 2027 og einnig sendar til fagnefnda sveitarfélagsins til frekari umfjöllunar. Þetta samþykkti sveitarstjórn eftir að fulltrúar ráðsins kynntu áherslur sínar á sameiginlegum fundi þann 12. nóvember sl.

Gott samtal átti sér stað milli fulltrúa Öldungaráðs og sveitarstjórnar. Þau Marteinn Njálsson varaformaður ráðsins, Sigríður Rafnsdóttir, Klara Hreggviðsdóttir og Katrín Rós Sigvaldadóttir sátu fundinn auk þess sem formaður ráðsins, Einar Þórarinsson sveitarstjórnarfulltrúi tók þátt í umræðum.

Það er ánægjulegt að sjá fulltrúa Öldungaráðs láta sig málefni sveitarfélagsins varða og koma áherslum sínum á framfæri.

Á mynd hér með eru fulltrúar Öldungaráðs ásamt Sveitarstjórn og sveitarstjóra að fundi loknum.