Fara í efni

NÝVEST – NET TÆKIFÆRA

Undanfarna mánuði hefur staðið yfir undirbúningur að stofnun Nýsköpunarnets Vesturlands (NÝVEST) hjá Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV). 
Markmiðið með stofnun netsins er að tengja saman alla sem vilja vinna að nýsköpun á Vesturlandi, fyrirtæki, stofnanir og einstaklinga.

Dagana 13, 15 og 16. september verður farið vítt og breytt um Vesturland til að kynna hugmyndina að stofnun NÝVEST.  

Kynningarfundir verða á eftirtöldum stöðum:

  • Akranes                   Breið (HB húsið)         mánudaginn     13. september kl. 12:00
  • Búðardalur            Vínlandssetrið             miðvikudaginn 15. september kl. 12:00
  • Borgarnes              Hjálmaklettur (MB)  miðvikudaginn 15. september kl. 16:00
  • Hellissandur         Röstin                                fimmtudaginn   16. september kl. 12:00
  • Stykkishólmur     Árnasetur                       fimmtudaginn   16. september kl. 12:00
  • Grundarfjörður   Sögumiðstöðin            fimmtudaginn   16. september kl. 16:00

ALLIR SEM  ÁHUGA HAFA Á NÝSKÖPUN Á VESTURLANDI ERU HVATTIR TIL AÐ MÆTA Á FUNDINA.
ALLIR 
VELKOMNIR.

Nánar má lesa um verkefnið í grein á vef Skessuhorns