Nýtt leiksvæði í landi Kross
Sveitarfélagið hyggst setja upp nýtt leiksvæði við íbúðarhverfið í landi Kross og er áætlað að framkvæmdir hefjist í byrjun sumars í kjölfar verðkönnunar í maí n.k.
Landslagshönnun svæðisins miðar að því að skapa fjölbreytt leiksvæði sem nýtist breiðum hópi notenda. Áhersla er lögð á að nýta þau náttúrulegu gæði sem svæðið býr yfir, svo sem hæðarmismun, gróður, göngustíga og að leiksvæðið falli vel að umhverfi sínu.
Leikvöllurinn er staðsettur við enda Garðavalla og við sjávarsíðuna. Á svæðinu er brekka sem nýta má undir sleða yfir vetrartímann og gefur svæðinu skemmtilegt yfirbragð.
Efla verkfræðistofa sér um hönnun leiksvæðisins og gerð verðkönnunargagna.
Verkefnastjóri framkvæmda og eigna hjá Umhverfis- og skipulagsdeild Hvalfjarðarsveitar mun annast umsjón og eftirlit með framkvæmd verksins.
Verklok eru áætluð í haust 2026.