Nýtt björgunarskip Björgunarfélags Akraness
12. maí 2026
Nýtt björgunarskip Björgunarfélags Akraness hefur nú verið tekið í notkun, skipið hefur nafnið Kristrún á Bjargi. Nafnið er valið til heiðurs Kristrúnar Hallgrímsdóttur sem var þekkt fyrir dugnað, hjálpsemi og mikilvægt framlag sitt til samfélagsins á Akranesi. Nánari upplýsingar má finna hér Björgunarfélag Akraness.
Formleg vígsla á skipinu verður á Sjómannadaginn, sunnudaginn 7. júní nk.
Hvalfjarðarsveit styrkti Björgunarfélag Akraness um 2.000.000 kr. vegna kaupa á björgunarskipinu. Af því tilefni fengu fulltrúar sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar að heimsækja skipið og kynna sér aðstöðu, búnað og starfsemi björgunarfélagsins.
Vel var tekið á móti hópnum og heimsóknin bæði ánægjuleg og fróðleg.