Fara í efni

Nýsköpun í vestri: Frumkvöðla- og fyrirtækjamót á Vesturlandi

Nýsköpun í vestri: Frumkvöðla- og fyrirtækjamót á Vesturlandi  fer fram föstudaginn 29. september kl. 10-18 í Hjálmakletti í Borgarnesi.

Markmið frumkvöðla- og fyrirtækjamótsins er efla sköpunarkraft og frumkvöðlastarf á Vesturlandi, tengja fólk saman og stuðla að nýjum verkefnum og verðmætasköpun á svæðinu. Nýsköpun í vestri er stefnumót nýrra og reyndra frumkvöðla og rótgróinna fyrirtækja, auk allra þeirra sem hafa áhuga á nýsköpun og frumkvöðlastarfi, umhverfismálum og sjálfbærni.
Dagskráin er blanda af fræðslu, vinnustofum, reynslusögum, tengslamyndun og nýsköpunarrýmið Kvikan verður heimsótt. Hluti af dagskránni er úthlutun atvinnu- og nýsköpunarstyrkja úr Uppbyggingarsjóði Vesturlands og gefst þátttakendum tækifæri til að spjalla við styrkhafa. Hádegismatur í boði og léttar veitingar í lok dags.

Öll velkomin og þátttaka er ókeypis, nauðsynlegt er að skrá sig til að áætla veitingar og minnka matarsóun. Nánari upplýsingar má einnig finna á Facebook.

Nýsköpun í vestri er samstarfsverkefni Gleipnis, nýsköpunar- og þróunarseturs á Vesturlandi, Nývest, Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi og er styrkt af Sóknaráætlun Vesturlands.