Nýr skólastjóri Heiðarskóla
Anna Margrét Tómasdóttir hefur verið ráðin í starf skólastjóra Heiðarskóla frá og með 1. ágúst nk.
Anna Margrét er með uppeldisfræðimenntun (Pædagog gráðu) og hefur frá árinu 2018 verið með starfsleyfi sem kennari. Auk þess er Anna með M.ed í tómstunda- og félagsmálafræði frá Háskóla Íslands og meistaragráðu í útilífsfræðum. Vorið 2026 mun Anna Margrét ljúka diplómu í Stjórnun menntastofnana, menntastjórnun og matsfræði við Háskóla Íslands.
Anna Margrét hefur víðtæka reynslu af kennslu og stjórnun. Undanfarin ár hefur hún starfað sem skólastjóri Reykhólaskóla sem er samrekinn leik- og grunnskóli. Áður starfaði Anna Margrét sem forstöðumaður Ungmenna- og tómstundabúða UMFÍ frá 2006-2021.
Anna Margrét tekur við starfinu af Sigríði Láru Guðmundsdóttur sem starfað hefur í skólanum í áratugi og sem skólastjóri frá árinu 2016 en Sigríður Lára mun láta af störfum í sumar vegna aldurs og eru henni færðar innilegar þakkir fyrir farsælt starf og framlag í þágu Heiðarskóla.
Hvalfjarðarsveit býður Önnu Margréti velkomna til starfa og hlakkar til samstarfsins á komandi misserum.