Fara í efni

Nýr samtalsvettvangur fyrir ferðaþjónustuaðila í Hvalfjarðarsveit

Í samræmi við umræður á fundi ferðaþjónustuaðila í Hvalfjarðarsveit, sem haldinn var 7. september síðastliðinn, hefur verið stofnaður Facebook-hópur fyrir ferðaþjónustuaðila í sveitarfélaginu.

Hópurinn er ætlaður sem samtalsvettvangur þar sem hægt er að miðla upplýsingum, ræða tækifæri og áskoranir og stilla saman strengi um þróun ferðaþjónustu á svæðinu.

Ferðaþjónustuaðilar í Hvalfjarðarsveit eru hvattir til að ganga í hópinn og taka þátt í samtalinu.

Smelltu hér til að skoða hópinn og óska
eftir aðild.