Fara í efni

Nýr félagsmálastjóri Hvalfjarðarsveitar

Sólveig Sigurðardóttir er nýr félagsmálastjóri Hvalfjarðarsveitar og hefur hún þegar hafið störf.

Sólveig hefur mikla reynslu af störfum í félagsþjónustu og barnavernd. Hún er með MA próf í félagsráðgjöf frá Háskóla Íslands og hefur starfað í barnavernd og félagsþjónustu sveitarfélaga á Íslandi og í barnavernd og fjölskyldurétti í Svíþjóð.

Sólveig er gift Njáli Vikari Smárasyni lækni og eiga þau þrjú börn saman. Fjölskyldan er búsett á Akranesi.

Hvalfjarðarsveit býður Sólveigu velkomna til starfa.