Fara í efni

Nýr byggingarfulltrúi

Arnar Skjaldarson hefur verið ráðinn sem byggingarfulltrúi í Hvalfjarðarsveit. 

Arnar er menntaður byggingafræðingur frá Vitus Bering University Horsens, Danmörku og iðnfræðingur frá sama skóla.  Hann hefur starfað sem byggingafræðingur frá árinu 2003, þ.a. sjálfstætt frá árinu 2014.

Arnar mun hefja störf í janúar. 

Hvalfjarðarsveit býður Arnar velkominn til starfa.