Fara í efni

Nýr aðalbókari

Sæmundur Rúnar Þorgeirsson hefur verið ráðinn sem aðalbókari í Hvalfjarðarsveit. 

Sæmundur Rúnar er menntaður viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands.  Hann býr að áralangri reynslu af bókhaldsstörfum, skattauppgjörsmálum og almennri skrifstofuvinnu.

Sæmundur Rúnar mun hefja störf í maí. 

Hvalfjarðarsveit býður Sæmund Rúnar velkominn til starfa.