Ný hjúkrunarrými bætast við á Höfða
Í dag var undirritaður samningur um stækkun hjúkrunar- og dvalarheimilisins Höfða um 60 hjúkrunarrými. Í dag eru 75 íbúar á Höfða, þar af 2 í skammtímarýmum. Hjúkrunarrýmum mun því fjölga um 80% þegar nýja heimilið verður tekið í notkun.
Samningurinn var undirritaður af Ingu Sæland mennta- og barnamálaráðherra, Steinari Adolfssyni bæjarstjóra og Haraldi Benediktssyni oddvita Hvalfjarðarsveitar.
Gert er ráð fyrir að nýja hjúkrunarheimilið verði tengt við núverandi hjúkrunarheimili á nýrri lóð sem verður skipt út úr Sólmundarhöfða. Samkomulagið er gert með fyrirvara um ákvörðun Alþingis um fjárveitingu á fjárlögum fyrir uppbyggingu húsnæðisins og rekstri hjúkrunarrýmanna. Þá er gerður fyrirvari um endanlegt samþykki tilheyrandi skipulagsyfirvalda.
Að sögn Haraldar Benediktssonar, oddvita Hvalfjarðarsveitar hafa sveitafélögin, Hvalfjarðarsveit og Akraneskaupstaður, lengi unnið að stækkun á hjúkrunarheimilinu Höfða, enda rík þörf fyrir stærra heimili og biðlistar stöðugt að lengjast.
Áfanginn er því langþráður og væntingar til þess að þessi mikilvæga framkvæmd gangi samkvæmt áætlun.