Fara í efni

Neyðarkallinn í Hvalfjarðarsveit

Hvalfjarðarsveit keypti Neyðarkallinn til stuðnings starfi Björgunarfélags Akraness. Ólafur Lárus Gylfason afhenti sveitarfélaginu Neyðarkallinn fyrir hönd félagsins. Sala Neyðarkallsins er ein helsta fjáröflun félagsins og styðji við starf sjálfboðaliða þess.

Hvalfjarðarsveit og Björgunarfélag Akraness hafa átt gott samstarf um árabil og er samstarfssamningur í gildi milli aðila. Í samningnum sem er frá 2020 er kveðið á um 1,4 milljóna króna árlegan styrk frá sveitarfélaginu sem tekur breytingum samkvæmt vísitölu. Samningsaðilar eru sammála um nauðsyn þess að í Hvalfjarðarsveit sé rekin öflug starfsemi björgunarsveitar sem geti sinnt ýmiskonar björgunarstörfum þegar á þarf að halda og er Björgunarfélag Akraness mikilvægur þáttur í skipulagi almannavarna í Hvalfjarðarsveit.

Sveitarfélagið hefur einnig stutt við einstök verkefni félagsins í gegnum árin. Árið 2026 veitti Hvalfjarðarsveit félaginu til að mynda tveggja milljóna króna styrk til kaupa á björgunarskipinu Kristrúnu á Bjargi.

Hvalfjarðarsveit þakkar Björgunarfélaginu fyrir afar gott samstarf í gegnum árin og óskar félaginu og félagsmönnum þess farsældar í sínum störfum sem þeir sinna af æðruleysi í sjálfboðavinnu allan ársins hring, starfi sem bjargar mannslífum og skiptir svo oft sköpum í erfiðum aðstæðum í lífi fólks.