Fara í efni

Narfabakki - Deiliskipulagsbreyting

Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkti 13. ágúst að auglýsa breytingu á deiliskipulagi Narfabakka L203959, skv. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Breyting er gerð á skilmálum, lóð nr. 5 er minnkuð og færð sunnar innan deiliskipulagsins og nýtt svæði fyrir vindmyllur er afmarkað auk aðkomu að hinu nýja svæði. Raforka er ætluð til staðbundinnar notkunar innan jarðar.

Kynningartími tillögunnar er frá 21. ágúst – 2. október 2026.

Tillagan er auglýst á heimasíðu sveitarfélagsins og er til sýnis í Skipulagsgátt Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagstofnunar, hér

Hverjum þeim aðila sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemd við tillögurnar á kynningartíma. Athugasemdum skal skilað inn rafrænt í Skipulagsgátt. Ef óskað er nánari kynningar á tillögunum skal bóka tíma hjá skipulagsfulltrúa.

Umhverfis- og skipulagsdeild