Fara í efni

Námskeið fyrir íbúa á Vesturlandi

Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi vilja vekja athygli á námskeiðum sem Símenntunarmiðstöðin á Vesturlandi stendur fyrir í apríl en þau standa til boða fyrir íbúa á Vesturlandi þeim að kostnaðarlausu. Það eru Kjölur, stéttarfélag, Stéttarfélag Vesturlands, Verkalýðsfélag Snæfellinga, Verkalýðsfélag Akraness, Landsmennt, fræðslusjóður ásamt Samtökum sveitarfélag á Vesturlandi sem styrkja þessa námskeiðaröð og bjóða íbúum á Vesturlandi fría þátttöku. 

Kynnið ykkur málið inn á  https://simenntun.is/frettir/vefnamskeid-i-april/