Fara í efni

Móar - deiliskipulag

Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkti á fundi sínum þann 13. október að auglýsa deiliskipulagstillögu í landi Móa samkvæmt 40. og 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 m.s.br.

 Deiliskipulag fyrir Móa í Hvalfjarðarsveit tekur til núverandi bygginga sem er íbúðarhús og tvö gestahús, auk nýrra bygginga sem eru 12 gestahús auk tjaldsvæðis, þjónustuhús, geymslu, og gróðurhús.

 Móar - deiliskipulag

Deiliskipulagstillagan er til sýnis á skrifstofu Hvalfjarðarsveitar og einnig á heimasíðu sveitarfélagsins www.hvalfjardarsveit.is.

 Kynning verður á skrifstofu Hvalfjarðarsveitar föstudaginn 23.október á milli 10:00 – 12:00.

 Athugasemdum skal skilað til skrifstofu Hvalfjarðarsveitar að Innrimel 3, 301 Akranesi, eða á netfangið skipulag@hvalfjardarsveit.is merkt ”Móar”. fyrir 4. desember 2020.

 Bogi Kristinsson Magnusen
Skipulags- og umhverfisfulltrúi Hvalfjarðarsveitar