Metnaðarfull uppbygging, hóflegar álögur og ábyrg fjármálastjórn
Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkti samhljóða með öllum greiddum atkvæðum fjárhagsáætlun fyrir árið 2027 og þriggja ára áætlun fyrir árin 2028–2030 á fundi sínum 26. nóvember 2026.
Áætlunin ber þess skýr merki að fram undan eru ár mikilla framkvæmda og breytinga en fyrirhugaðar fjárfestingar á áætlunartímabilinu nema 2,5 milljarði króna. Markmiðið er að mæta þörfum samfélagsins til framtíðar og skapa áfram góð skilyrði fyrir búsetu, atvinnustarfsemi og fjölbreytt samfélagslíf.
Lægra álagningarhlutfall á íbúðarhúsnæði
Álagningarhlutfall fasteignaskatts á íbúðarhúsnæði lækkar úr 0,34% í 0,32% af fasteignamati. Útsvar verður áfram 14,14% og álagningarhlutföll fasteignaskatts í B- og C-flokki verða óbreytt, 1,32% og 1,65%. Gert er ráð fyrir að almennar gjaldskrár sveitarfélagsins hækki að jafnaði um 2,5%.
Jákvæð rekstrarafkoma öll fjögur árin
Samkvæmt fjárhagsáætlun ársins 2027 er gert ráð fyrir að heildartekjur A- og B-hluta Hvalfjarðarsveitar verði um 2.051 milljón króna. Rekstrargjöld, að meðtöldum afskriftum, eru áætluð um 2.029 milljónir króna.
Áætlaður rekstrarafgangur að teknu tilliti til fjármagnsliða er 77,2 milljónir króna árið 2027. Gert er ráð fyrir að rekstrarafgangur A- og B-hluta verði um 211 milljónir króna árið 2028, 244 milljónir árið 2029 og 256 milljónir árið 2030.
Nýr leikskóli í Melahverfi og áframhaldandi uppbygging í Heiðarborg
Árið 2027 er gert ráð fyrir um 841 milljón króna í fjárfestingar og fjárfestingarframlög. Þar af eru um 530 milljónir ætlaðar til byggingar leikskólans í Melahverfi og um 205 milljónir til framkvæmda við Heiðarborg. Einnig er gert ráð fyrir fjármunum til gatnagerðar, göngu- og reiðhjólastíga, fráveituframkvæmda og annarra mikilvægra innviðaverkefna.
Á síðari hluta tímabilsins er gert ráð fyrir uppbyggingu leikskólamannvirkja á Krosslandi. Frekari vinna er nauðsynleg við útfærslu verkefnisins, meðal annars varðandi umfang, fyrirkomulag og tímasetningu.
Fjármögnun framkvæmda
Hvalfjarðarsveit gengur inn í áætlunartímabilið með sterka eiginfjárstöðu og án langtímaskulda við lánastofnanir. Samkvæmt áætluninni verður handbært fé um 270 milljónir króna í árslok 2027, samanborið við um 920 milljónir samkvæmt útkomuspá ársins 2026.
Áætlunin gerir ráð fyrir ádráttarlánum vegna framkvæmda árin 2028 og 2029 og 746 milljóna króna langtímaláni árið 2030. Áfram verður stefnt að því að komast hjá lántöku eða takmarka umfang hennar eftir því sem aðstæður leyfa.
Áframhaldandi uppbygging og öflugt samfélag
Fjárhagsáætlun sveitarfélagsins er ekki eingöngu áætlun um tekjur og útgjöld. Hún endurspeglar jafnframt þá framtíðarsýn sem sveitarstjórn hefur fyrir samfélagið.
Hvalfjarðarsveit stendur frammi fyrir spennandi tímum. Verkefni okkar er að nýta þau tækifæri sem fram undan eru af festu og framsýni, byggja áfram upp öflugt samfélag og gæta þess um leið að fjárhagslegur styrkur sveitarfélagsins verði áfram ein af mikilvægustu undirstöðum þess.
Hér meðfylgjandi eru hlekkir á annars vegar fjárhags- og framkvæmdaáætlun og hins vegar greinargerð sveitarstjóra.