Fara í efni

Menningardagskrá á Vesturlandi

Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV) og Markaðsstofa Vesturlands (MV) ætla með
stuðning frá Sóknaráætlun Vesturlands að stuðla að öflugri menningardagskrá á Vesturlandi í
sumar.
Af því tilefni er kallað eftir skráningu á viðburðum og menningarstarfi sem er á döfinni í
landshlutanum og haldnir verða á tímabilinu 1. júní -31. ágúst. Hægt er að skrá til leiks
viðburði og uppákomur af öllu tagi, jafnt stóra sem smáa og hvort heldur sem er fullmótaða
eða á hugmyndastigi. Dagskránni er ætlað að ná yfir margvíslega viðburði og allar listgreinar
og upplifanir, svo sem tónlist, leiklist, myndlist, sagnalist, matarlist eða hvað það er sem fólk
vill bjóða upp á eða standa fyrir.
Starfsmenn SSV og MV munu vera í sambandi við þá aðila sem senda inn skráningu, fara
yfir innsendar tillögur og raða saman dagskrá sem tekur mið af því að alltaf sé spennandi
dagskrá í boði á þeim fjórum starfssvæðum sem við notum oft á Vesturlandi, þ.e. á Akranesi
og Hvalfirði, Borgarfjarðarhéraði, Snæfellsnesi og í Dölum.
Settar hafa verið fram tvennskonar áherslur við þessa dagskrárgerð. Annars vegar verður
boðið uppá „fasta liði“ þar sem markmiðið er að hafa allavega einn fastann viðburð á dag,
alla daga vikunnar, á þessum fjórum svæðum á tímabilinu. Hinsvegar er stefnt á að geta skráð
og kynnt alla einsskiptis viðburði sumarsins á Vesturlandi, sem verða þá tilfallandi „krydd í
tilveruna“ svo sem tónleikar, menningarhátíðir og svo framvegis.
Markaðsstofan sér um kynningu á verkefninu og dagskránni í allt sumar, þar sem stefnt er að
því að kynna alla skráða viðburði á miðlum markaðsstofunnar. Ljóst er að ef vel tekst til, þá
verður þessi menningardagskrá áberandi í flóru dægrardvalar á Vesturlandi í sumar. Þannig
ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi og gefur það fólki tilefni til að heimsækja
Vesturland, dvelja lengur á svæðunum og njóta viðburða og menningar með heimafólki.
SSV og MV kalla nú eftir að samstarfsaðilar sem hafa hug á að standa fyrir einhversskonar
menningartengdri starfssemi og viðburðum í sumar, skrái sig með því að fara inná
meðfylgjandi hlekk og fylla út skráningarblaðið. Saman getum við styrkt Vesturland, aukið
framboð á skemmtilegri upplifun, auðgað menningarlífið og laðað að gesti á öllum svæðum.
Menningarfulltrúi Vesturlands, Sigursteinn Sigurðsson veitir nánari upplýsingar um
verkefnið: sigursteinn@ssv.is

Skráning á viðburða- og menningardagskrá á Vesturlandi 2020