Melahverfi S13 - Skipulagslýsing
Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkti á fundi sínum 9. júlí 2026 að auglýsa skipulagslýsingu að breytingu á aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 fyrir leikskólalóð í Melahverfi, skv. 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Breytingin tekur til samfélagsþjónustureits S13 í Melahverfi þar sem unnið er að hönnun leikskóla og leikskólalóðar Skýjaborgar við Innrimel 7. Reiturinn breytist lítillega og til samræmis breytist afmörkun á aðliggjandi skógræktar- og landgræðslusvæðinu S18. Gerð er breyting á uppdrætti og stærð svæða í aðalskipulagi en skilmálar haldast óbreyttir. Samhliða aðalskipulags-breytingu er gerð breyting á deiliskipulagi fyrir Melahverfi I og II, þar sem lóðin Innrimelur 7 stækkar, byggingarmagn eykst og lega Innrimels, aðkoma, gangstétt og bílastæði eru nánar útfærð.
Kynningartími tillögunnar er frá 22. júlí – 12. ágúst 2026 í skipulagsgátt, hér.
Hverjum þeim aðila sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemd við tillögurnar á kynningartíma. Athugasemdum skal skilað inn rafrænt í Skipulagsgátt. Ef óskað er nánari kynningar á tillögunum skal bóka tíma hjá skipulagsfulltrúa.
Umhverfis- og skipulagsdeild.