Melahverfi S13 - Kynningarfundur og auglýsing vinnslutillögu
Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkti á fundi sínum 4. september 2026 að auglýsa tillögu að breytingu á aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 fyrir reit S13 í Melahverfi á vinnslustigi sbr. 2. mgr. 30. greinar skipulagslaga nr. 123/2010.
Breytingin tekur til samfélagsþjónustureits S13 í Melahverfi þar sem unnið er að hönnun leikskóla og leikskólalóðar Skýjaborgar við Innrimel 7. Reitur S13 breytist lítillega og til samræmis breytist afmörkun á aðliggjandi skógræktar- og landgræðslusvæðinu S18. Gerð er breyting á uppdrætti og stærð svæða í aðalskipulagi en skilmálar haldast óbreyttir.
Kynningartími tillögunnar á vinnslustigi er frá 11. ágúst – 2. október 2026 í Skipulagsgátt, hér.
Kynningarfundur tillögunnar verður haldinn í Stjórnsýsluhúsi Hvalfjarðarsveitar að Innrimel 3, miðvikudaginn 23. september nk. kl. 17.
Samhliða aðalskipulagsbreytingu verður gerð breyting á reit S13 í deiliskipulagi fyrir Melahverfi I og II sem kynnt verður á fundinum.
Tillagan er auglýst á heimasíðu sveitarfélagsins og er til sýnis í Skipulagsgátt Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagstofnunar. Hverjum þeim aðila sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemd við tillögurnar á kynningartíma. Athugasemdum skal skilað inn rafrænt í Skipulagsgátt. Ef óskað er nánari kynningar á tillögunum skal bóka tíma hjá skipulagsfulltrúa.
Umhverfis- og skipulagsdeild