Fara í efni

Melahverfi I og II

Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkti á fundi sínum þann 23. apríl 2025 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi fyrir Melahverfi I og II í samræmi við ákvæði 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 m.s.br. Breytingin tekur til íbúðarbyggðar og þjónustulóða Melahverfis. Skipulagssvæðið eru tæpir 18 ha. Á skipulagssvæðinu eru tvö deiliskipulög í gildi og er tillagan deiliskipulag fyrir svæðið í heild þar sem gildandi skipulagsáætlanir eru komnar til ára sinna og eru nú uppfærðar í samræmi við breyttar kröfur. Á byggðum lóðum verða lóðamörk í einhverjum tilfellum yfirfarin og byggingarskilmálar endurskoðaðir.

Melahverfi I og II, deiliskipulagsbreyting
Melahverfi I og II, skipulagsuppdráttur

Tillagan eru auglýst á heimasíðu sveitarfélagsins og skipulagsgátt Skipulagsstofnunar (www.skipulagsgatt.is)
frá 29. maí - 10. júlí 2025.

Hverjum þeim aðila sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemd við tillögurnar á kynningartíma. Athugasemdum skal skilað inn rafrænt í skipulagsgáttina. Ef óskað er nánari kynningar á tillögunum skal bóka tíma hjá skipulagsfulltrúa.

Deildarstjóri Umhverfis- og skipulagsdeildar Hvalfjarðarsveitar.