Fara í efni

LOKAÐ FYRIR HEIMSÓKNIR Á HÖFÐA HJÚKRUNAR- OG DVALARHEIMILI

Áríðandi tilkynning til íbúa, ættingja og starfsfólks Höfða vegna sýkingar af völdum Kórónaveirunnar (COVID-19) á Íslandi

Stjórn og stjórnendur Höfða hefur tekið þá ákvörðun að loka hjúkrunarheimilinu fyrir heimsóknum ættingja og annarra gesta frá og með 7. mars 2020 þar til annað verður formlega tilkynnt. Er þetta gert að höfðu samráði við Sóttvarnarlækni og Landlækni eftir að Neyðarstigi almannavarna var lýst yfir í gær. Höfði er hér fylgja eindregnum tilmælum þessara aðila sem eru í framvarðasveit Almannavarna Íslands. Heilsa og velferð íbúanna þarf alltaf að vera í forgangi.

Nú er staðfest að smit vegna Kórónaveirunnar hafa borist á milli einstaklinga í þjóðfélaginu. Þar sem íbúar Höfða eru flestir aldraðir og / eða með ýmsa undirliggjandi sjúkdóma eru þeir í sérstökum áhættuhóp tengt því að veikjast alvarlega af Kórónaveirunni.

Leita þarf allra leiða til að draga úr þeirri hættu að íbúar heimilanna veikist af Kórónaveirunni. Okkur þykir mjög leitt að þurfa að taka svo stóra ákvörðun en þetta er gert með velferð íbúanna okkar í húfi og biðjum við fólk að sýna þessari ákvörðun virðingu og skilning. Það er ljóst að það getur reynst íbúa mjög erfitt að fá ekki heimsóknir frá ættingjum sínum og á sama hátt getur það reynst ættingjum íbúans mjög erfitt að heimsækja hann ekki. Það er samt nauðsynlegt að grípa til þessarra ráðstafana til að koma í veg fyrir að íbúi veikist af veirunni og eins geta smit borist frá ættingjum eins íbúa til annars íbúa.

Jafnframt verður umferð allra annara gesta nauðsynlegs starfsfólks á vakt, tökmörkuð inn á Höfða og gerðar hafa verið sérstakar reglur um það. Svo sem birgja með vörur, iðnaðarmenn og aðra sem þurfa að koma inn á heimilin.

Varðandi símtöl inn á heimilið og upplýsingar um líðan heimilisfólks þá bendum við á bein númer inn á hvert heimili sem nálgast má á www.dvalarheimili.is

Einnig er mikilvægt að þið kynnið ykkur upplýsingar og leiðbeiningar á vef Landlæknisembættisins www.landlaeknir.is. Þar eru greinargóðar upplýsingar og leiðbeiningar tengdar stöðu málar, en þær geta breyst frá degi til dags.

f.h. Höfða hjúkrunar- og dvalarheimilis
Kjartan Kjartansson, framkvæmdastjóri
Ólína Ingibjörg Gunnarsdóttir, hjúkrunarforstjóri