Fara í efni

Lögbundin hunda- og kattahreinsun í Hvalfjarðarsveit

Föstudaginn 8. nóvember nk. verður lögbundin hunda- og kattahreinsun í Hvalfjarðarsveit. 
Hreinsunin fer fram að KALASTÖÐUM milli kl. 17:00-19:00.

Samkvæmt 15. kafla hollustuháttareglugerðar nr. 941/2002, er hunda- og kattaeigendum skylt að láta ormahreinsa dýrið árlega.  Skylt er að ormahreinsa alla hunda og ketti 4 mánaða og eldri, og nýgotnar tíkur.  Skulu 3-4 vikna hvolpar spóluormahreinsaðir sérstaklega samkvæmt leiðbeiningum dýralæknis.

Gunnar Gauti Gunnarsson, dýralæknir í Borgarfjarðar-og Mýrasýslu, annast hreinsunina.

Ormahreinsun hunda er innifalin í leyfisgjaldi hunda í þéttbýli og þurfa þeir sem þegar hafa greitt það gjald, ekki að greiða sérstaklega fyrir hreinsun.  Annars kostar ormahreinsun hunda 2.000-5.000 kr. eftir þyngd dýrsins.

Dýralæknir býður einnig upp á bólusetningu (allt í einni sprautu): Smáveirusótt(Parvo), lifrarbólgu, hótel-hósta og hundafári á 3.000 kr, örmerkingu hunda og skráning í www.dyraaudkenni.is á 4.500 kr.

Óskráða hunda er hægt að skrá á staðnum.

Kattareigendum stendur einnig til boða að nýta þjónustu dýralæknis.  Ormahreinsun fyrir ketti kostar 2.500-4.500 kr. fer eftir þyngd, ófrjósemissprauta 3.000 kr., sprauta gegn kattarfári 3.000 kr og örmerking katta og skráning í www.dyraaudkenni.is á 4.500 kr.

Muna eftir að hafa heilsufarsbækur dýranna með.

Ath. að greiða þarf með reiðufé.

Upplýsingar um hundahald í Hvalfjarðarsveit er að finna á vef Hvalfjarðarsveitar www.hvalfjardarsveit.is