Lóa – nýsköpunarstyrkir fyrir landsbyggðina
Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Lóu - nýsköpunarstyrki fyrir landsbyggðina.
Lóa eru nýsköpunarstyrkir sem hafa það hlutverk að styðja við eflingu byggða og landshluta með nýskapandi verkefnum. Styrkjunum er aðeins úthlutað til verkefna utan höfuðborgarsvæðisins í þeim tilgangi að styðja við atvinnulíf og verðmætasköpun sem byggir á hugviti, þekkingu og nýrri færni. Sjóðurinn er ætlaður verkefnum sem komin eru af byrjunarstigi og er heildarfjárhæð hans í ár 100 milljónir króna.
Við mat á nýnæmi verkefna er stuðst við skilgreiningu OECD um nýsköpun. Nýsköpun er skilgreind sem innleiðing nýrrar eða mjög endurbættrar vöru, þjónustu eða ferils, nýrrar aðferðar til markaðssetningar eða nýrrar skipulagsaðferðar í viðskiptaháttum, skipulagi á vinnustað eða ytri samskiptum.
Vakin er athygli á að styrkirnir eru einnig fyrir verkefni sem styðja við uppbyggingu á vistkerfi fyrir nýsköpunarstarfsemi og frumkvöðlastarf á forsendum svæðanna. Slík verkefni munu þó ekki nema meira en helmingi þeirra verkefna sem hljóta úthlutun.
Umsóknarfrestur er til og með 30. mars 2026.
Umsóknarform má nálgast á minarsidur.hvin.is
Nánari upplýsingar um Lóu styrki má nálgast hér.