Ljósmyndasamkeppni 2026
Þema ljósmyndasamkeppni Hvalfjarðardaga í ár er „Hvalfjarðarsveit - Allt milli himins og jarðar.“
Á fundi Menningar- og markaðsnefndar þann 4.8.2026 valdi nefndin tíu myndir sem þóttu skara fram úr, þær myndir sem urðu fyrir valinu verða til sýnis í stjórnsýsluhúsinu á Hvalfjarðardögum. Nú er hægt að taka þátt í rafrænni kosningu og velja sína uppáhaldsmynd, sjá hlekk hér fyrir neðan. Niðurstaða kosningarinnar ræður úrslitum um hvaða mynd hlýtur verðlaun, sem verða veitt eftir Hvalfjarðardaga helgina. Hvatt er til þess að fólk líti á útprentuðu myndirnar áður en það greiðir atkvæði. Aðeins er heimilt að kjósa einu sinni. Kosningunni lýkur á miðnætti á sunnudag.
Þakkir til allra sem sendu inn myndir í ljósmyndasamkeppni Hvalfjarðardaga 2026. Þátttakan var einstaklega góð, alls bárust 120 myndir frá 22 þátttakendum.
Hlekkur á rafræna atkvæðagreiðslu: https://www.surveymonkey.com/r/ljosmyndasamkeppni