Fara í efni

Ljósmyndasamkeppni 2026

Í tengslum við Hvalfjarðardaga 2026 efnir menningar- og markaðsnefnd Hvalfjarðarsveitar til ljósmyndasamkeppni. Þema keppninnar í ár er „Hvalfjarðarsveit - Allt milli himins og jarðar.“

Óskað er eftir að þátttakendur sendi ljósmyndir sínar á netfangið
hvalfjardardagar@hvalfjardarsveit.is.
Síðasti skiladagur ljósmynda er 3. ágúst 2026.

Dómnefnd, skipuð fulltrúum Menningar- og markaðsnefndar Hvalfjarðarsveitar, mun fara yfir innsendar myndir og velja úr tíu frambærilegustu myndirnar. Þær tíu myndir sem verða fyrir valinu verða hengdar upp í stjórnsýsluhúsinu á Hvalfjarðadögum en þá munu viðburðarstjórar veita verðlaun fyrir bestu myndina.

Dagskrá Hvalfjarðardaga verður nánar auglýst síðar en þeir verða haldnir 13. til 16. ágúst nk.

Við hlökkum til að sjá Hvalfjarðarsveit frá ykkar sjónarhorni og hvetjum öll til að taka þátt.