Fara í efni

Litla-Botnsland Ferðaþjónusta L224375 - Deiliskipulag

Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkti 13. maí 2026 að auglýsa nýtt deiliskipulag skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, fyrir Litla Botnsland Ferðaþjónustu

Áformuð er uppbygging á hóteli og tengdri ferðaþjónustu með áherslu á náttúruupplifun og endurheimt vistkerfa. Tillagan gerir ráð fyrir gistingu fyrir allt að 200 gesti, bæði á hóteli og í smærri gestahúsum, auk veitingareksturs, náttúrubaða og útivistar. Málsnr. 589/2026 í Skipulagsgátt, hér

Kynningartími tillögunnar er frá 22. maí – 3. júlí 2026.

Hverjum þeim aðila sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemd við tillöguna á kynningartíma. Athugasemdum skal skilað inn rafrænt í Skipulagsgátt.
Ef óskað er nánari kynningar á tillögunum skal bóka tíma hjá skipulagsfulltrúa.

Umhverfis- og skipulagsdeild