Fara í efni

Linda Björk ráðin sveitarstjóri

Linda Björk sem gegnt hefur starfi skrifstofustjóra Hvalfjarðarsveitar frá miðjum júlí 2017 hefur verið ráðin sveitarstjóri Hvalfjarðarsveitar frá og með 1. júlí nk.  

Linda sem er rekstrarfræðingur vann hjá Landsbankanum á Akranesi frá 2011-2017, síðast sem viðskiptastjóri.  Þar áður var hún fjármálastjóri í Borgarbyggð árin 2006-2011 og sveitarstjóri í Borgarfjarðarsveit 2003-2006 en þar hafði hún unnið samfellt frá árinu 1999.  Starfsreynsla hennar í opinberri stjórnsýslu eru því samtals 13 ár.  Linda er gift Karvel L. Karvelssyni framkvæmdastjóra og eiga þau tvö börn og tvö barnabörn.