Fara í efni

Lífshlaup Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands

Lífshlaupið hefst 1. febrúar nk.

Lífshlaupið er heilsu- og hvatningarverkefni Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands sem höfðar til allra landsmanna.
Markmið þess er að sporna við kyrrsetu og hvetja landsmenn til þess að hreyfa sig meira í sínu daglega lífi. Stuðst er við ráðleggingar embættis landlæknis um hreyfingu sem segir að börn og unglingar þurfi að hreyfa sig minnst 60 mínútur daglega og fullorðnir þurfi að stunda miðlungserfiða hreyfingu í minnst 21,4 mínútur daglega.

Reglubundin hreyfing stuðlar að bættum svefni, bættum lífsgæðum, dregur úr líkum á ýmsum sjúkdómum og styrkir hjarta- og æðakerfið

Lífshlaupið skiptist í þessa keppnisflokka:
Vinnustaðakeppni stendur yfir frá 1. - 28. febrúar
Grunnskólakeppni fyrir 15 ára og yngri stendur yfir í tvær vikur í febrúar
Framhaldsskólakeppni fyrir 16 ára og eldri stendur yfir í tvær vikur í febrúar
Hreystihópar 60+ keppnin stendur yfir frá 1. - 28. febrúar

Skrá má alla hreyfingu sem nær minnst 30 mínútum samtals á dag hjá fullorðnum og minnst 60 mínútum samtals á dag hjá börnum og unglingum. Tímanum má skipta upp í nokkur styttri tímabil yfir daginn s.s. 10 til 15 mín í senn.

Vinnustaðir, skólar og hreystihópar eru hvattir til að taka þátt og nota þannig tækifærið til að efla líkama og sál með því að hreyfa sig daglega.

Taktu þátt og vertu fyrirmynd í hreyfingu fyrir fólkið í kringum þig www.lifshlaupid.is